Friday, April 13, 2007

Af eiginhagsmunaseggjum

Já var það ekki! Hinn dularfulli Dr. Smithson hafði eins og glögga lesendur köngulóamannsins hefur eflaust grunað eitthvað óhreint í pokahorninu. Nú hefur Peter gert sér grein fyrir að hinn Dr. Smithson er ekki hans bandamaður, og alls ekki mannvinur eins og hann. Hinn dularfulli Dr. Smithson er argasti kapítalisti, heltekinn af gróðafíkn. Peter sættir sig svo alls ekki að vessar úr hans líkama séu gerðir að verslunarvöru. Nú bíðum við bara spennt eftir því að sjá vin okkar í fullu fjöri að berjast gegn óréttlæti.

Thursday, April 12, 2007

Af siðgæðispostulum

Hinn dularfulli læknir Dr. Smithson er kominn á vinnustofu sína. Þar hyggst hann rannsaka blóð Peter Parkers. Hljóður fylgist Peter með. Nú þarf hann að glíma við svakalegar siðferðislegar spurningar því, meining Dr. Smithson er svo að blóð Peter/Köngulóamannsins gæti læknað sjúkdóma. Eða hvað??? Gæti verið að hinn Dularfulli Dr. Smithson hafi illan ásetning í fórum sínum? Peter Parker glímir a.m.k. við afar siðferðislegar spurningar um þessar mundir.

Mitt framlag

Fyrir þau ykkar sem kaupa morgunblaðið og kunna að meta ævintýri Köngulóamannsins.